Hjukrun.is-print-version

Styrkir úr A-hluta Vísindasjóðs greiddir út

RSSfréttir
15. febrúar 2017
Styrkir úr A-hluta vísindasjóðs vegna ársins 2016 voru greiddir út í dag til starfandi hjúkrunarfræðinga. Alls voru greiddar út tæpar 192 milljónir. Styrkirnir voru lagðir inn á þá bankareikninga sem félagsmenn hafa skráð á Mínum síðum.

Inni á Mínum síðum er að finna yfirlit yfir greiðslur úr sjóðnum. Ef þú hefur ekki fengið greiðslu en telur þig eiga að fá greitt úr Vísindasjóði getur ástæðan verið sú að bankaupplýsingar vantar eða að þær séu ekki réttar. Á Mínum síðum er hægt að lagfæra þær upplýsingar undir liðnum Persónuuplýsingar.

Í kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er ákvæði um það að launagreiðanda beri að greiða sem svarar 1,5% af grunnlaunum hjúkrunarfræðinga í vísindasjóð, en úr sjóðnum fá félagsmenn greitt í lok febrúar ár hvert.

Styrkirnir eru framtalsskyldir en ekki staðgreiðsluskyldir. Þetta þýðir að alla styrki verður að telja fram sem tekjur á skattframtali, en heimilt er þó að draga frá (allt að því jafnhá) gjöld vegna útlagðs kostnaðar.

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála