Hjukrun.is-print-version

​ ​Liljusjóðurinn

RSSfréttir
27. mars 2017

Rannsóknar- og styrktarsjóður Lilju Guðrúnar Hannesdóttur auglýsir til umsóknar styrki til rannsóknar á vandamálum er tengjast eyrum með sérstöku tilliti til vandamála í mið- og innra eyra svo sem eyrnasuðs, svima og heyrnartruflana.

Tilgangur sjóðsins er að styrkja rannsóknir á vandamálum er tengjast eyrum með sérstöku tilliti til vandamála í mið- og innra eyra svo sem eyrnasuðs, svima og heyrnartruflana. Tilgangur rannsókna skal vera sá, að afla hverrar vitneskju, sem hægt er, til að komast að uppsprettu vandamála er tengjast eyrum og / eða hverning leysa megi þau.

Umsóknarfrestur er til 11. maí 2017.
Úthlutað verður úr sjóðnum á afmælisdegi Lilju þann 24. maí 2017.

Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu sjóðsins http://www.liljusjodurinn.is eða hjá undirrituðum.

Arnar Guðjónsson, yfirlæknir Háls-, nef- og eyrnadeild Landspítala; arnarg@landspitali.is
Ingibjörg Hinriksdóttir, yfirlæknir Heyrnar- og talmeinastöð Íslands; ingibjorg@hti.is
Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála