10.
apríl 2017
Fimmtudaginn 18. maí næstkomandi verður aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldinn á Grand Hótel, Reykjavík.
Vakin er athygli á að tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórn félagsins fyrir 20. apríl. Hið sama gildir um önnur mál sem félagsmenn óska eftir að tekin verði fyrir á aðalfundi.
Fundurinn er að þessu sinni haldinn að kvöldlagi og hefst kl. 19:00. Allir félagsmenn hafa rétt til setu á aðalfundi en félagsmenn með fulla aðild, fagaðild og lífeyrisaðild sem hafa skráð sig til þátttöku á fundinn fyrir 11. maí hafa atkvæðisrétt á fundinum. Aðrir fundarmenn hafa þar ekki atkvæðisrétt.
Boðið verður upp á streymi af aðalfundi fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.