Meðal helstu verkefna fulltrúa á skrifstofu Fíh eru almenn skrifstofustörf, umsjón með félagaskrá, skjalavistunarkerfi og fjarfundabúnaði félagsins. Einnig felur starfið í sér tengsl við stjórnir vísinda- og orlofssjóðs og umsjón með úthlutun úr orlofssjóði og orlofsvefnum, ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Starfssvið:
- Almenn skrifstofustörf
- Umsjón með úthlutun úr orlofssjóði og orlofsvefnum
- Umsjón með félagaskrá félagsins
- Tengsl við stjórnir vísinda- og orlofssjóðs
- Umsjón með skjalavinnslukerfi félagsins
- Umsjón með fjarfundabúnaði félagsins
- Aðstoð við auglýsingaöflun fyrir Tímarit hjúkrunarfræðinga
- Önnur tilfallandi verkefni
Laun taka mið af kjarasamningi SFR við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Fíh, í síma 540-6400 og tölvupósti gudbjorg@hjukrun.is. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf umsækjenda, ásamt lista yfir nöfn umsagnaraðila, berist til skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 22, eða á netfangið gudbjorg@hjukrun.is, til og með föstudeginum 30. júní 2017.