Hjukrun.is-print-version

Með augum hjúkrunarfræðingsins

RSSfréttir
29. ágúst 2017


Auglýst er eftir ljósmyndum til að prýða forsíðu á haustútgáfu Tímarits hjúkrunarfræðinga. 
Ljósmyndasamkeppni var haldin fyrir vorblaðið og bárust fjölda fallegra ljósmynda í keppnina. Var því ákveðið að endurtaka leikinn.

Myndefni er frjálst en efnistök blaðs og árstíð geta haft áhrif á val forsíðumyndarinnar.
Handhafi forsíðumyndar fær að launum gjafakort að andvirði 25.000 krónur.

Þátttakendur sendi myndir á netfangið ritstjori@hjukrun.is fyrir 15. október með upplýsingum um hver tók myndina og stutta lýsingu á myndinni.

Tímaritið áskilur sér rétt til að birta fleiri myndir í blaðinu með umfjöllun um samkeppnina.
Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála