11.
janúar 2018
Vinnueftirlit ríkisins boðaði til morgunverðarfundar 11. janúar með yfirskriftinni „Áreitni ávinnustöðum, NEI TAKK!“.
Fundurinn var haldinn til að vekja athygli á mikilvægi þess að efla forvarnir á sviði vinnuverndar með sérstaka áherslu á einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
Í lok fundarins var undirrituð viljayfirlýsing um aðgerðir gegn einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Hún var undirrituð af forsætisráðherra og velferðarráðherra auk aðilum vinnumarkaðarins, stéttarfélögum, fyrirtækjum, stofnunum og félagssamtökum. Formaður Fíh undirritaði viljayfirlýsinguna fyrir hönd Fíh.
Nánari umfjöllun á vef Vinnueftirlitsins
Frétt á vef Stjórnarráðsins