Hjukrun.is-print-version

Styrkir greiddir úr Vísindasjóði

RSSfréttir
13. febrúar 2018

Þann 14. febrúar voru greiddir styrkir úr vísindasjóði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga til allra félagsmanna sem störfuðu hjá hinu opinbera á liðnu ári. Að þessu sinni voru greiddir styrkir til 3054 félagsmanna og nam heildarfjárhæð styrkja 211 milljónum króna. 
Styrkurinn sem um ræðir er greiðsla úr A-hluta vísindasjóðs, en þeim sjóði er að stuðla að sí- og endurmenntun félagsmanna sem starfa hjá hinu opinbera.  Vinnuveitendur á opinbera markaðinum greiða mánaðarlega 1,5% framlag af launum félagsmanna í sjóðinn. Styrkurinn nemur 95% af innborgun á hvern félagsmann, en sú upphæð sem stendur eftir fer í B-hluta vísindasjóðsins, sem ætlað er að styrkja rannsóknir og fræðaskrif félagsmanna. 
Styrkirnir eru framtalsskyldir en ekki staðgreiðsluskyldir. Þetta þýðir að alla styrki verður að telja fram sem tekjur á skattframtali og eru þeir forskráðir inn á skattframtal félagsmanna Fíh. Heimilt er þó að draga frá (allt að því jafnhá) gjöld vegna útlagðs kostnaðar, og er þá átt við kostnað vegna sí- og endurmenntunar félagsmanna, rannsókna þeirra og fræðaskrif. 
Til þess að hægt sé að greiða styrkinn þurfa bankareikningsupplýsingar að vera réttar  og við hvetjum þig því til að fara inn á Mínar síður og athuga hvort að bankareikningsupplýsingar séu rétt skráðar, en þær má skoða og lagfæra undir liðnum Persónuupplýsingar. 

Mínar síður

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála