Sviðsstjóri fagsviðs
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leitar að metnaðarfullum, framsæknum og skipulögðum hjúkrunarfræðingi með góða þekkingu og brennandi áhuga á málefnum hjúkrunar.
Tilgangur fagsviðsins er að efla fagmennsku og styðja við þekkingarþróun í hjúkrun. Það er gert með fræðslu og símenntun, ráðstefnuhaldi, erlendu samstarfi, ráðgjöf og rannsóknum á sviði hjúkrunar.
Um er að ræða 100% starf.
Starfs- og ábyrgðarsvið
- Þjónusta við félagsmenn
- Móta og fylgja eftir stefnumálum félagsins
- Vinna að þróun hjúkrunar, heilbrigðisþjónustu og heilsueflingar
- Vinna að eflingu símenntunar, sérþekkingar og nýsköpunar
- Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi
- Frétta-, greina-, og skýrsluskrif
- Þátttaka í öðrum verkefnum félagsins
- Hjúkrunarfræðingur með meistarapróf
- Víðtæk reynsla af málefnum hjúkrunar
- Leiðtogahæfileikar og stefnumótandi hugsun
- Metnaður, frumkvæði og skipulagshæfni
- Jákvætt viðmót og góð samskiptafærni
- Áhugi á og færni í teymisvinnu
- Færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Upplýsingar veitir:
Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í síma 540-6400 eða gudbjorg@hjukrun.is
Umsóknarfrestur er til 17. maí 2018. Umsóknum skal skila rafrænt á umsokn@hjukrun.is ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.
Sérfræðingur í kjaramálum
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leitar að talnaglöggum og þrautseigum einstaklingi á kjara- og réttindasvið. Viðkomandi þarf jafnframt að hafa ríka þjónustulund og góða þekkingu á íslenskum vinnumarkaði og kjarabaráttu.Kjara- og réttindasvið fæst m.a. við ráðgjöf og rannsóknir á sviði kjaramála auk kjarasamningsgerðar við stofnanir sem hjúkrunarfræðingar starfa við.
Um er að ræða 100% starf en einnig kemur til greina að ráða í 80% starfshlutfall.
Starfs- og ábyrgðarsvið
- Þjónusta við félagsmenn
- Greining og úrvinnsla tölulegra gagna
- Þátttaka í kjarasamningsgerð
- Vinna innan samstarfsnefnda
- Umsjón með endurnýjun stofnanasamninga
- Frétta-, greina-, og skýrsluskrif, kynningarmál og fræðsla
- Þátttaka í öðrum verkefnum félagsins
Menntun, reynsla og hæfni
- Háskólamenntun sem nýtist vel í starfi
- Talnagleggni og mjög góð greiningarhæfni
- Reynsla af kjarasamningagerð æskileg
- Þekking á samningatækni æskileg
- Leiðtogahæfileikar
- Metnaður, frumkvæði og skipulagshæfni
- Jákvætt viðmót og góð samskiptafærni
- Áhugi á og færni í teymisvinnu
- Færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Upplýsingar veita:
Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í síma 540-6400 eða gudbjorg@hjukrun.is og Gunnar Helgason sviðsstjóri kjara- og réttindasviðs í síma 540-6400 eða gunnar@hjukrun.is
Umsóknarfrestur er til 17. maí 2018. Umsóknum skal skila rafrænt á umsokn@hjukrun.is ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.