27.
maí 2018
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leitar að metnaðarfullum, framsæknum og skipulögðum hjúkrunarfræðingi með góða þekkingu og brennandi áhuga á málefnum hjúkrunar.
Tilgangur fagsviðsins er að efla fagmennsku og styðja við þekkingarþróun í hjúkrun. Það er gert með fræðslu og símenntun, ráðstefnuhaldi, erlendu samstarfi, ráðgjöf og rannsóknum á sviði hjúkrunar.
Um er að ræða 100% starf.
Starfs- og ábyrgðarsvið
- Þjónusta við félagsmenn
- Móta og fylgja eftir stefnumálum félagsins
- Vinna að þróun hjúkrunar, heilbrigðisþjónustu og heilsueflingar
- Vinna að eflingu símenntunar, sérþekkingar og nýsköpunar
- Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi
- Frétta-, greina-, og skýrsluskrif
- Þátttaka í öðrum verkefnum félagsins
- Hjúkrunarfræðingur með meistarapróf
- Víðtæk reynsla af málefnum hjúkrunar
- Leiðtogahæfileikar og stefnumótandi hugsun
- Metnaður, frumkvæði og skipulagshæfni
- Jákvætt viðmót og góð samskiptafærni
- Áhugi á og færni í teymisvinnu
- Færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Upplýsingar veitir:
Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í síma 540-6400 eða gudbjorg@hjukrun.is
Umsóknarfrestur er til 18. júní 2018. Umsóknum skal skila rafrænt á umsokn@hjukrun.is ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.