7.
júní 2018
Í kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga frá árinu 2016 var samið um upptöku starfsmatskerfisins SAMSTARF. Aðgerðaráætlun sem fylgir kjarasamningunum gerir ráð fyrir innleiðingu starfsmatsins í þremur skrefum, en innleiðingarferlinu átti að vera lokið fyrir 1. júní 2018.
Reyndin hefur orðið sú að mat á störfum samkvæmt starfsmati tók lengri tíma en gert var ráð fyrir í kjarasamningum. Það liggur því fyrir að innleiðingarferli starfsmats fyrir hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá sveitarfélögum var ekki lokið fyrir 1. júní 2018.
Niðurstaða:
Til að bregðast við þessum aðstæðum og tryggja örugga innleiðingu starfsmats hafa aðilar orðið sammála um eftirfarandi:
- Frá 1. júní 2018 gildir bráðabirgðaröðun starfa áfram þar til starfsmatsniðurstaða og ný launaröðun liggur fyrir.
- Launatafla fyrir bráðabirgðaröðun starfa hækkar um 3,4% frá 1. júní 2018.
- Þrátt fyrir tafir á upptöku starfsmats gildir starfsmatsniðurstaða engu að síður frá 1. júní 2018 samkvæmt gildandi launatöflu starfsmatsfélaga.
- Verði niðurstaða starfsmats hærri en bráðabirgðaröðun mun starfsmaður raðast samkvæmt henni þegar hann hefur afsalað sér föstum viðbótargreiðslum eða þeim verið sagt upp í samræmi útfærslu reiknivélar 2.
- Verði niðurstaða starfsmats lægri en bráðabirgðaröðun ber að lækka röðun starfsins til samræmis við þá niðurstöðu þremur mánuðum eftir að starfsmatsniðurstaða hefur verið tilkynnt af framkvæmdanefnd.
- Stefnt skal að því að innleiðingu starfsmats verði lokið eigi síðar en 31. desember 2018.