21.
ágúst 2018
Í júní sl. voru gerðar breytingar á launasetningu hjúkrunarfræðinga í stofnanasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Heilbrigðistofnunar Norðurlands.
Breytingin á launasetningu kom til vegna ráðstöfunar fjármuna sem áður voru greiddir til hjúkrunarfræðinga í formi eingreiðslu vegna bókunar 3. Ekki var vilji meðal stjórnenda á HSN til þess að halda áfram með sérstaka eingreiðslu vegna bókunar 3 og eins var ekki vilji til að taka upp frammistöðumat líkt og Landspítali hefur framkvæmt sl. tvö ár.
Því var ákveðið að laun allra hjúkrunarfræðinga á HSN muni hækka um 2,5 prósent og gildir hækkunin frá 1. apríl 2018.
Launaröðun hjúkrunarfræðinga á HSN er því með eftirfarandi hætti eftir hækkunina:
Starfaflokkur | Launaflokkar | Laun |
Hjúkrunarfræðingur 1 (0-2 ár í starfi) |
5:0 – 6:0 |
415.791- 436.580 |
Hjúkrunarfræðingur 2 (2-5 ár í starfi) |
6:0 – 7:0 |
436.580 - 458.409 |
Hjúkrunarfræðingur 3 (meira en 5 ár í starfi) |
8:0 – 10:0 |
481.330 - 530.666 |
Verkefnastjóri |
9:0 |
505.396 |
Yfirhjúkrunarfræðingur á deild/sviði |
11:1 |
571.129 |