Hjukrun.is-print-version

Hvað ræður launaþróun hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum?

RSSfréttir
28. september 2018

Þrátt fyrir áratuga baráttu til að minnka launamun milli hefðbundna kvenna- og karlastarfa sem krefjast sambærilegrar menntunar hefur staðan lítið breyst. Laun fyrir hefðbundin kvennastörf, eins og hjúkrun, eru aðeins um 80% af launum fyrir hefðbundin karlastörf. Samtök hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum (The Nordic Nurses Federation - NNF) héldu sameiginlega ráðstefnu um kjara- og launamál hjúkrunarfræðinga á Hótel Nordica í Reykjavík 26. – 27. september.

Ráðstefnuna sóttu 80 fulltrúar félaganna til að ræða málefnið, stilla saman strengi og afla hugmynda um vænlegar leiðir í kjara- og launabaráttu hjúkrunarfræðinga.  Formenn félaganna lýstu kjörum og vinnuaðstæðum hjúkrunarfræðinga í hverju landi fyrir sig og fræðimenn og sérfræðingar á sviði félagsvísinda, hagfræði og kjaramála fluttu erindi sem vörpuðu ljósi á málefnið frá ýmsum hliðum. Framsöguerindi um jafnréttisbaráttu, kynbundinn launamun, launaþróun á Norðurlöndum og starfsmatskerfi voru gott nesti í fjörugum hópumræðum þátttakenda.

Hvað er til ráða til að bæta og jafna kjörin?

Í umræðum á ráðstefnunni komu fram ýmsar hugmyndir sem bæta mættu og jafna kjör hjúkrunarfræðinga. Þeirra á meðal voru:

  • Að mynda sátt milli stéttarfélaga um að leiðrétta kynbundinn launamun.
  • Að auka launabil innan stéttarinnar, hækka hæstu laun til að skapa rými til að hægt sé að hækka lægstu laun.
  • Stofnanasamningar í stað miðlægra kjarasamninga.
  • Starfsmatskerfi verði tekin upp þar sem störf eru metin út frá sömu forsendum.
  • Stytting vinnuviku vaktavinnufólks.
  • Að skapa samkeppni um hjúkrunarfræðinga á markaði með auknum sjálfstæðum rekstri hjúkrunarfræðinga .
  • Að kalla eftir pólitískum viðbrögðum þó að stjórnmálamenn séu tregir til að blanda sér í kjaradeilur.
  • Hefðbundin samningaleið þar sem launaþróun á opinberum og frjálsum markaði helst í hendur.

Engin ein leið er líkleg til að rétta laun hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum. Eitt er þó víst að kjör hjúkrunarfræðinga lúta ekki hefðbundnum markaðslögmálum. Aukið vægi starfa hjúkrunarfræðinga í samfélaginu og sú staðreynd að marga vantar til starfa endurspeglast ekki í launum.

Samtakamáttur félaga hjúkrunarfræðinga

Í erindum formannanna komu fram sameiginlegir drættir. Alls staðar eru laun hjúkrunarfræðinga lág miðað við viðmiðunarstéttir með sambærilega menntun og alls staðar vantar fleiri hjúkrunarfræðinga til starfa. Félög hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum þurfa því að sýna samstöðu í kjarabaráttu fyrir stéttina, mynda sambönd og tengslanet. Samtakamáttur þeirra er sterkari en hvert félag út af fyrir sig.

Á fundi stjórnar Samtaka hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum, sem haldinn var daginn fyrir þingið, var skrifað undir yfirlýsingu þar sem kallað er eftir pólitískum viðbrögðum gegn launaójöfnuði. Yfirlýsinguna má lesa hér: Yfirlýsing stjórnar Samtaka hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum

Meira verður fjallað um ráðstefnuna í næsta tímariti hjúkrunarfræðinga sem gefið verður út síðar í haust.


     

 

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála