Konur eru hvattar til að leggja niður vinnu kl. 14:55 miðvikudaginn 24. október og fylkja liði á samstöðufund á Arnarhóli, kl. 15:30 undir kjörorðinu: Breytum ekki konum, breytum samfélaginu!
Að fundinum standa samtök kvenna og launafólks, þar á meðal Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Breytum ekki konum, breytum samfélaginu!
Síðastliðið ár hafa frásagnir kvenna af áreitni, ofbeldi og misrétti á vinnustöðum undirstrikað að brýnt sé að tryggja öryggi kvenna og jaðarsettra hópa á vinnumarkaði.
Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands um launamun kynjanna eru meðalatvinnutekjur kvenna 74% af meðalatvinnutekjum karla. Konur eru því með 26% lægri atvinnutekjur að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir launum sínum eftir 5 klukkustundir og 55 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9–17. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14:55. Með þessu áframhaldi ná konur ekki sömu launum og karlar fyrr en árið 2047 – eftir 29 ár! Eftir því getum við ómögulega beðið!
Fundir verða víðs vegar um landið, enn er verið að skrá viðburði. Yfirlit yfir fundina má sjá á vefnum kvennafri.is , eins má sjá fundina á viðburðardagskrá Kvennafrís á Facebook.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hvetur félagsmenn til að mæta á fundi og sýna samstöðu.