Hjukrun.is-print-version

Kristín Þórarinsdóttir ver doktorsritgerð sína í hjúkrunarfræði

RSSfréttir
22. nóvember 2018

Þriðjudaginn 27. nóvember ver Kristín Þórarinsdóttir doktorsritgerð sína í hjúkrunarfræði við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Persónumiðaða matstækið Hermes. Þróun og notkun í endurhæfingarhjúkrun. The person-centred assessment tool Hermes. Development and use in rehabilitation nursing.

Athöfnin fer fram í  Norræna húsinu og hefst kl. 12:00. Herdís Sveinsdóttir, prófessor og deildarforseti við Hjúkrunarfræðideild, stjórnar athöfninni.

Andmælendur eru dr. Brendan McCormack, prófessor við Queen Margaret University, Skotlandi, og dr. Snæfríður Þóra Egilson, prófessor við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Umsjónarkennari var dr. Kristín Björnsdóttir, prófessor við Hjúkrunarfræðideild sem einnig var leiðbeinandi ásamt dr. Kristjáni Kristjánssyni, prófessor við Jubilee Centre for Character and Virtues, University of Birmingham, Bretlandi. Auk þeirra sat í doktorsnefnd Þóra Jenný Gunnarsdóttir, dósent við Hjúkrunarfræðideild.

Ágrip af rannsókn

Meginmarkmið doktorsritgerðarinnar er að lýsa: i) heimspekilegum og fræðilegum hugmyndum og aðferðum sem nýttar voru við þróun persónumiðaðs matstækis í endurhæfingarhjúkrun sem nefnt var Hermes, og ii) innleiðingu og notkun matstækisins í endurhæfingarhjúkrun.

Ritgerðin byggir á þremur rannsóknum. Fyrsta rannsóknin var hugtakagreining á persónumiðaðri þátttöku sjúklinga í heilbrigðisþjónustu sem byggir á samþættingu 60 eigindlegra rannsókna. Önnur rannsóknin var þátttökurannsókn en í henni tóku þátt 12 hjúkrunarfræðingar í endurhæfingu og ráðgjafi. Í gegnum rannsóknina var matstækið Hermes, sem byggt var á fræðilegum og fyrirbærafræðilegum grunni, þróað. Gögnum var safnað með rýnihópum einstaklingsviðtölum og endurskoðun á skráningu á Hermes. Þriðja rannsóknin var vettvangsathugun. Þátttakendur voru 14 sjúklingar með langvinna verki í endurhæfingu og fimm hjúkrunarfræðingar þeirra og var gögnum safnað með þátttökuathugun og hálf-stöðluðum viðtölum.

Helstu niðurstöður rannsóknanna voru að þróun og notkun Hermes stuðlaði að persónumiðaðri þátttöku sjúklinga í heilsufarsmati. Rödd sjúklinga kom sterkt fram í matinu sem veitti heildræna sýn á heilsufarsvanda. Þá stuðlaði notkun Hermes að styðjandi tengslum og opinni samræðu með túlkandi ívafi milli sjúklinga og hjúkrunarfræðinga um heilsufarsvanda. Með þessu móti myndaðist skilningur á veikindunum og aðstæðum sjúklinga sem gat verið hjálplegur við að koma til móts við heilsufarsleg áhyggjuefni. Þá auðveldaði Hermes mat á árangri endurhæfingarinnar.

Notkun Hermes getur stuðlað að persónumiðaðri þátttöku sjúklinga í endurhæfingu. Því er matstækið talið nýtilegt í endurhæfingarhjúkrun. Einnig er mögulegt að matstækið sé gagnlegt á öðrum sviðum heilbrigðisþjónustu.

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála