23.
nóvember 2018
Orlofssjóður Fíh hefur tekið á leigu 4ra herbergja íbúð að Þórunnarstræti 132 á Akureyri. Íbúðin verður til útleigu til félagsmanna og er kærkomin viðbót við orlofskosti félagsins. Orlofssjóður er á þennan hátt að svara óskum félagsmanna um aðra íbúð á Akureyri. Um er að ræða fallega íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli miðsvæðis í bænum, rétt hjá Glerártorgi. Íbúðin verður tilbúin til útleigu í byrjum desember og þá verður hægt að bóka dvöl í henni á orlofsvef félagsins.