29.
nóvember 2018
Afmælisnefnd Fíh auglýsir eftir söngelskum hjúkrunarfræðingum í afmæliskór hjúkrunarfræðinga undir stjórn Bjargar Þórhallsdóttur hjúkrunarfræðings og sópransöngkonu og manns hennar, Hilmars Arnar Agnarssonar organista og kórstjóra. Kórinn mun koma fram og flytja 2-3 lög á opnunarhátíð 100 ára afmælis félagsins 15. janúar 2019.
Æft verður í byrjun janúar - alls 2-3 æfingar. Allir söngelskir og/eða kórvanir hjúkrunarfræðingar hvattir til að taka þátt. Áhugasamir hafi samband við Björgu á netfangið bjorgthorhalls@gmail.com fyrir 15. desember.
Fjölmennum í kórinn og höfum gaman!