Hjukrun.is-print-version

Hátt í þúsund hjúkrunarfræðingar fögnuðu 100 ára afmæli

RSSfréttir
16. janúar 2019
Hátt í þúsund hjúkrunarfræðingar komu saman í gær, þriðjudaginn 15. janúar, til að fagna aldarafmæli Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Um var að ræða opnunarhátíð afmælisárs félagsins og fór hún fram á Hilton Nordica.

Formaður félagsins, Guðbjörg Pálsdóttir, flutti ávarp ásamt Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og Ölmu Möller landlækni. Björg Þórhallsdóttir, söngkona og hjúkrunafræðingur tók lagið og nýstofnaður kór hjúkrunarfræðinga flutti nokkur lög við undirleik Hilmars Arnar Agnarssonar. Ari Bragi Kárason lék á trompet og Ari Eldjárn var með uppistand.

Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands var viðstödd hátíðahöldin en hún er heiðursfélagi í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga. Móðir hennar, Sigríður Eiríkisdóttir, var fyrsti íslenski formaður félagsins en hún tók við því hlutverki 1924 og markaði mikilvæg spor í sögu hjúkrunar á Íslandi á sínum 36 ára ferli sem formaður.
Í ávarpi formannsins kom meðal annars fram að hjúkrunarfræðingar hafi barist frá upphafi fyrir því að hjúkrunarmenntun væri í hæsta gæðaflokki hér á landi og benti á að í dag er hátt hlutfall hjúkrunarfræðinga sem hafa lokið framhaldsmenntun hér á landi. Doktorsmenntaðir hjúkrunarfræðingar eru orðnir rúmlega 40 talsins og nú er boðið upp á doktorsnám við báðar hjúkrunarfræðideildir háskólanna. Þá eru yfir 100 sérfræðingar í hjúkrun á Íslandi.

„Já, Ísland er því ríkt land að hafa möguleika á svo miklum mannauði við störf í heilbrigðiskerfinu og án efa einhver lönd sem vildu gjarnan vera í okkar sporum,“ sagði Guðbjörg Pálsdóttir, formaður félagsins.

Þá sagði formaðurinn hjúkrunarfræðinga horfa til framtíðar með bjartsýni. ,,Við stefnum fram á veginn og horfum til nýrrar hjúkrunaraldar með mikilli bjartsýni. Það er ljóst að þróun heilbrigðismála á 21. öldinni mun hafa það í för með sér að hjúkrunarfræðingar munu í framtíðinni gegna enn stærra hlutverki innan heilbrigðiskerfisins en nú er.”

Aldarafmælinu verður fagnað með fjölbreyttum viðburðum út árið. Hægt er að kynna sér þá á afmælisvef félagsins.
Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála