18.
febrúar 2019
Frá Kjörnefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga:
Guðbjörg Pálsdóttir núverandi formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er sjálfkjörin formaður næsta kjörtímabil 2019-2021. Formannskjöri verður lýst á aðalfundi Fíh 16. maí 2019.
Samkvæmt lögum félagsins skal kjörtímabil formanns vera tvö ár og skal formaður vera í fullu starfi hjá félaginu. Framboðsfrestur til formanns kjörtímabilið 2019-2021 rann út 31. janúar 2019. Eitt framboð barst Kjörnefnd, frá Guðbjörgu Pálsdóttur núverandi formanni félagsins og er hún því sjálfkjörin.