Hjukrun.is-print-version

Tillögur til lagabreytinga og önnur mál

RSSfréttir
3. apríl 2019

Fimmtudaginn 16. maí næstkomandi verður aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldinn á Grand Hótel, Reykjavík, 17:00-21:00.

Vakin er athygli á að tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórn félagsins fyrir 18. apríl. Hið sama gildir um önnur mál sem félagsmenn óska eftir að tekin verði fyrir á aðalfundi.

Sérstök hátíðardagskrá verður á fundinum í tilefni afmælis félagsins auk venjulegra aðalfundarstarfa. Allir félagsmenn hafa rétt til setu á aðalfundi en félagsmenn með fulla aðild, fagaðild og lífeyrisaðild sem hafa skráð sig til þátttöku á fundinn fyrir 9. maí hafa atkvæðisrétt á fundinum. Aðrir fundarmenn hafa þar ekki atkvæðisrétt.

Boðið verður upp á streymi af aðalfundi fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála