Hjukrun.is-print-version

Golfmót hjúkrunarfræðinga 2019

RSSfréttir
8. apríl 2019

Golfmót hjúkrunarfræðinga verður haldið á Hamarsvelli, Golfklúbbi Borgarness, fimmtudaginn 20. júní kl. 13:00.

Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni og ræst út frá öllum teigum samtímis. Hámarks forgjöf er 36.

Að þessu sinni er mótið eingöngu fyrir hjúkrunarfræðinga og í tilefni 100 ára afmælis Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga mun félagið styrkja mótið.

Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Að auki verða nándarverðlaun á par 3 holum vallarins, þar sem bolti verður að enda á flöt og verðlaun fyrir lengsta upphafshögg þar sem bolti verður að enda á braut. Dregið úr skorkortum og verður keppandi að vera viðstaddur úrdrátt.

Opnað verður fyrir skráningu á golf.is þann 23. apríl 2019, kl. 12:00. Fyrstur kemur fyrstur fær. Mótsgjald er kr. 6.400. Innifalið í mótsgjaldi er máltíð eftir leik. Greiðist í afgreiðslu klúbbsins fyrir leik.

Boðið verður upp á rútuferð fram og tilbaka ef næg þátttaka, en könnun verður meðal leikmanna sem skrá sig í mótið er nær dregur á facebook síðu Golfmót hjúkrunarfræðinga þar sem allar upplýsingar verður að finna. Eru keppendur vinsamlega beðnir um að skrá sig inn á þá síðu.

Styrktaraðilar Golfmóts hjúkrunarfræðinga 2018 voru eftirtaldir og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn:
Arion banki
Bryggjan brugghús
Center Hotels Reykjavík
Eldagesign.is,
Farmers Bistro, Flúðasveppir Flúðum,
Golfbúðin Hafnarfirði
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar.
Golfklúbbur Mosfellsbæjar.
Golfskálinn
Hreyfing
Jörgensen restaurant, spa Center Hotels Miðgarði/Hlemmi.
Medor
Mjólkursamsalan
Nói Síríus
Olís OB
Skeljungur
Under Armor
Weleda heildverslun Nefndin

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála