23.
maí 2019
Afmælisrit Tímarits hjúkrunarfræðinga er komið út og dreifing þess stendur nú yfir. Í tímaritinu var leitast við að varpa ljósi á fjölbreytt viðfangsefni hjúkrunarfræðinga á Íslandi í fortíð, nútíð og framtíð. Meðal efnis eru endurlit og hugleiðingar núlifandi formanna félaga hjúkrunarfræðinga og minningar um aðra sem fallnir eru frá. Þá var leitað fanga til fjölmargra einstaklinga og eru höfundum færðar bestu þakkir fyrir þeirra framlag.
Það er von ritnefndar að efni afmælisritsins endurspegli að einhverju leyti mikilvægi hjúkrunar á Íslandi undanfarna öld og glæði trú hjúkrunarfræðinga á bjarta framtíð stéttarinnar um ókomin ár.
Lesa afmælisrit