Hjukrun.is-print-version

Samið um innágreiðslu í endurskoðaðri viðræðuáætlun við Reykjavíkurborg

RSSfréttir
1. júlí 2019
 Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og Reykjavíkurborg hafa skrifað undir endurskoðaða viðræðuáætlun vegna tafa sem orðið hafa á gerð nýs kjarasamnings. Hjúkrunarfræðingar sem starfa hjá borginni munu fá greidda 105 þúsund króna eingreiðslu þann 1. ágúst. 2019. Fjárhæð þessi er partur af fyrirhuguðum launabreytingum endurnýjaðs kjarasamnings, miðast við fullt starf og greiðist hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall á tímabilinu frá og með 1. apríl 2019 til og með 30. júní 2019. Upphæðin á að vera sambærileg við það sem lífskjarasamningur hefði gefið hjúkrunarfræðingum á sama tíma.
 
Að öðru leyti er endurskoðoð viðræðuáætlun til samræmis við það sem samið hefur verið um við ríkið.  Sjá nánar hér: https://www.hjukrun.is/um-fih/frettir/stok-frett/2019/06/27/Samid-um-innagreidslu-i-endurskodadri-vidraeduaaetlun/
Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála