Auðbjörg starfar á heilsugæslustöðinni á Kirkjubæjarklaustri sem er ein af mörgum starfsstöðvum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands sem er stærsta heilbrigðisumdæmi landsins. Hún segir starfið vera bæði í krefjandi og ögrandi en umfram allt bráðskemmtilegt enda engir tveir dagar eins. Auðbjörg er menntuð hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir og sjúkraflutningamaður.
Hún býr með fjölskyldu sinni á sveitabænum Maríubakka, austan við Klaustur, sem eru æskuslóðir eiginmanns hennar, Bjarka V. Guðnasonar sjúkraflutningamanns. Þau eiga þrjú börn; Maríönnu Katrínu 15 ára, Bríet Sunnu 9 ára og Kristófer Gunnar 7 ára.
Auðbjörg hefur í gegnum árin tekið virkan þátt í ýmsum nefndarstöfum, bæði á vegum sveitarfélagsins og í almennum félagsstörfum, og er formaður Rauða krossins á Klaustri. Þegar frí gefst nýtur hún þess að glugga í góða bók og vera með fjölskyldu sinni og vinum því að „hver stund er dýrmæt og hver dagur er gjöf.“
3.
september 2019