4.
desember2019
Lokaskiladagur vegna heilsustyrks er 9. desember næstkomandi. Styrkir sem borist hafa fyrir þann tíma með tilskyldum gögnum verða greiddir út 20. desember 2019.
Veittur er styrkur í heild allt að 45.000 krónum á ári vegna heilsutengdra útgjalda. Greiðslur úr sjóðnum eru almennt skattskyldar og er staðgreiðslan dregin af fjárhæð fyrir útborgun. Styrkir vegna íþróttaiðkunar, heilsuræktar eða endurhæfingar eru þó ekki skattskyldir. Styrkirnir verða greiddir út 20. desember 2019.
Sótt er um á mínum síðum og þarf umsókninni að fylgja kvittun vegna greiðslu (mynd/skjáskot eða PDF skjal).
Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Styrktarsjóðs.