Viðræður milli Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samninganefndar ríkisins eru áfram í gangi, en ganga hægt. Vinnuhópur sem hefur það að markmiði að endurskoða vinnutíma vaktavinnumanna hóf aftur störf í síðustu viku og á Fíh fulltrúa í þeim hópi. Niðurstaða úr vinnu vaktavinnuhópsins mun ráða miklu um áframhald kjarasamningaviðræðna Fíh við ríkið.
Viðræður munu halda áfram fram að jólum, en að mati samninganefndar Fíh er nokkuð ljóst er að ekki mun takast að semja um nýjan kjarasamning við ríkið fyrir áramót.
Samninganefnd Fíh mun halda áfram að halda hjúkrunarfræðingum upplýstum um gang viðræðna eins og hægt er en biður um skilning á því að ekki er hægt að skýra nákvæmlega frá innihaldi samningaviðræðna meðan á þeim stendur vegna trúnaðarins sem þarf að ríkja á milli samningsaðila. Markmið Fíh er að ganga frá samningi fyrir hjúkrunarfræðinga sem felur í sér bætt launakjör, starfsumhverfi og betri vinnutíma og að nýr kjarasamningur sé til þess fallinn að halda hjúkrunarfræðingum í starfi og laða þá aftur til starfa sem hafa leitað í önnur störf.