Þann 12. febrúar voru greiddir styrkir úr Vísindasjóði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga til allra félagsmanna sem störfuðu hjá hinu opinbera á liðnu ári. Að þessu sinni voru greiddir styrkir til 3266 félagsmanna og nam heildarfjárhæð styrkja 253 milljónum króna.
Styrkurinn sem um ræðir er greiðsla úr A-hluta vísindasjóðs og er ætlað að stuðla að sí- og endurmenntun félagsmanna sem starfa hjá hinu opinbera. Vinnuveitendur á opinbera markaðinum greiða mánaðarlega 1,5% framlag af launum félagsmanna í sjóðinn. Styrkurinn nemur 95% af innborgun á hvern félagsmann, en sú upphæð sem stendur eftir fer í B-hluta Vísindasjóðsins, sem ætlað er að styrkja rannsóknir og fræðaskrif félagsmanna.
Styrkirnir eru framtalsskyldir en ekki staðgreiðsluskyldir. Þetta þýðir að alla styrki verður að telja fram sem tekjur á skattframtali og eru þeir forskráðir inn á skattframtal félagsmanna Fíh. Heimilt er þó að draga frá (allt að því jafnhá) gjöld vegna útlagðs kostnaðar, og er þá átt við kostnað vegna sí- og endurmenntunar félagsmanna, rannsókna þeirra og fræðaskrif.
Til þess að hægt sé að greiða styrkinn þurfa bankareikningsupplýsingar að vera réttar og við hvetjum félagsmenn Fíh því til að fara inn á Mínar síður og athuga hvort að bankareikningsupplýsingar séu rétt skráðar, en þær má skoða og lagfæra undir liðnum Persónuupplýsingar.
11.
febrúar 2020