12.
febrúar 2020
Kjörnefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga auglýsir eftir framboðum í stjórn félagsins og ritnefnd Tímarits hjúkrunarfræðinga. Einnig er auglýst eftir skoðunarmönnum fyrir kjörtímabilið 2020-2021:
Stjórn félagsins: 3 stjórnarmenn og 1 varamaður.
Ritnefnd Tímarits hjúkrunarfræðinga: 3 aðalmenn.
Samkvæmt lögum félagsins er kosið til tveggja ára í senn, nema í tilfelli skoðunarmanna, þar er kosið til eins árs í senn. Hámarksseta í nefndum og stjórn er fjögur tímabil samfellt.
Kosning fer fram á aðalfundi félagsins 26. maí 2020. Framboð tilkynnist til kjörnefndar í netfangið kjornefnd@hjukrun.is
Framboðsfrestur er til 20. apríl 2020