24.
mars 2020
Enn einum árangurslausum samningafundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og Samninganefndar ríkisins (SNR) lauk nú eftir hádegi í dag. Enn ber mikið í milli deiluaðila þegar kemur að launaliðnum og viss atriði úr kröfugerð Fíh sem standa út af borðinu. Ríkissáttasemjari sleit fundi deiluaðila án þess að boða til nýs fundar.