Hjukrun.is-print-version

Bakvarðasveitir

RSSfréttir
25. mars 2020

Óskað hefur verið eftir heilbrigðisstarfsfólki á útkallslista í Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar, en sá listi hefur því miður ekki náð til stofnana á vegum sveitarfélaga.

Nú vinna Félags- og barnamálaráðherra og Samband íslenskra sveitarfélaga, vinna í sameiningu að því að koma á fót bakvarðasveit í velferðarþjónustu.

 

Bakvarðasveit velferðarþjónustu – óskað eftir starfsfólki á útkallslista

Félags- og barnamálaráðherra og Samband íslenskra sveitarfélaga, vinna í sameiningu að því að koma á fót bakvarðasveit í velferðarþjónustu.

Í ljósi atburða síðustu daga og vikna er varðar heimsfaraldur Covid-19 er ljóst að útbreiðsla veirunnar gæti orðið til þess að valda erfiðleikum í veitingu þjónustu og skapað álag á vissum starfstöðvum. Við slíkar aðstæður er brýnt að tryggja lögbundna þjónustu og aðstoð til viðkvæmustu hópanna. Því hefur verið ákveðið að fara af stað með svokallaða bakvarðasveit í velferðarþjónustu þar sem einstaklingar geta skráð sig á lista hafi þeir tök á að ráða sig tímabundið, hvort sem er í fullt starf eða tímavinnu.

Óskað er eftir fólki sem getur starfað í þjónustu við fatlað fólk, aldraða, heimilislausa, börn með sértækar stuðningsþarfir, barnavernd og fjárhagsaðstoð. Reynsla af störfum í velferðarþjónustu er kostur en ekki skilyrði. Hæfniskröfur taka mið af viðkomandi starfi.

Nánari upplýsingar um skráningu eru á vef stjórnarráðsins

 

Hver er munurinn á listunum?

Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar er fyrir þá hjúkrunarfræðinga sem vilja skrá sig á útkallslista Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og heilbrigðisstofnana.

Bakvarðasveit velferðarþjónustu er fyrir þá hjúkrunarfræðinga sem vilja skrá sig á útkallslista velferðarþjónustu, t.a.m. hjúkrunarheimili.

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála