Atkvæðagreiðsla vegna kjarasamninga Fíh við fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs fór fram dagana 20. apríl kl. 12:00 til 29. apríl kl. 12:00. Á kjörskrá voru 2.859, eða þeir hjúkrunarfræðingar sem fengið höfðu laun skv. kjarasamningi félagsins við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs frá 1. apríl 2019 - 31. mars 2020. Alls tóku 2.288 þátt í kosningunum eða 80,03%.
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já sögðu 1.052 eða 45,98%
Nei sögðu 1.213 eða 53,02%
Ég tek ekki afstöðu 23 eða 1,01%
Kjarasamningur undirritaður þann 10. apríl 2020 hefur því verið felldur af atkvæðabærum félagsmönnum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og hefur því ekki gildi milli aðila.
Formanni Samninganefndar ríkisins og Ríkissáttasemjara hefur verið tilkynnt um niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar.