Skráning er hafin á aðalfund Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem haldinn verður fimmtudaginn 17. september 2020 kl. 17:00-19:00 á Grand Hótel, Reykjavík.
Allir félagsmenn hafa rétt til setu á aðalfundi en félagsmenn með fulla aðild, fagaðild og lífeyrisaðild sem hafa skráð sig til þátttöku á fundinn fyrir 10. september næstkomandi og sitja hann hafa atkvæðisrétt á fundinum. Aðrir fundarmenn hafa þar ekki atkvæðisrétt.
Athugið að ekki verður hlé á fundinum né boðið upp á veitingar til að halda löglegu bili milli einstaklinga og draga úr sameiginlegum snertiflötum. Boðið verður upp á hanska og grímur fyrir þá sem þess óska, og farið verður að sóttvarnartilmælum.
Mikilvægt er að einungis þeir sem ætli sér að sitja fundinn skrái sig til þátttöku, þar sem bregðast þarf við fjölda fari hann umfram fjöldamörk samkomubanns sóttvarnalæknis.
Hægt verður að fylgjast með fundinum á streymi.
Frambjóðendur til stjórnar eru kynntir á vef aðalfundar.