Samninganefndir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Reykjavíkurborgar skrifuðu undir kjarasamning föstudaginn 4. september sl. Samningurinn gildir frá 1. apríl 2019 - 31. mars 2023
Kynningarfundur um efni nýs kjarasamnings verður haldinn mánudaginn 7. september kl. 16.30-18:00 á Grand hótel, Gullteig. Kynningarefni um kjarasamninginn verður aðgengilegt á „mínum síðum“ á vef Fíh eftir kynningarfundinn eða frá og með kl. 18:00 á mánudag. Atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn hefst þriðjudaginn 8. september kl. 12:00 og lýkur föstudagsinn 11. september kl. 12:00. Á kjörskrá verða þeir hjúkrunarfræðingar sem voru á launaskrá Reykjavíkurborgar í ágúst 2020.
Fíh hvetur hjúkrunarfræðinga hjá Reykjavíkurborg til þess að mæta á kynningarfundinn, kynna sér vel efni nýs kjarasamnings og taka þátt í atkvæðagreiðslu.