Heilbrigðisyfirvöld óska eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Leitað er að fólki sem hefur aðstæður og er reiðubúið að koma tímabundið til starfa í heilbrigðisþjónustunni með skömmum fyrirvara, hvort heldur í fullt starf, hlutastarf eða í tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa.
ATH: Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar nær einungis til starfa hjá opinberum heilbrigðisstofnunum. Heilbrigðisstarfsfólki sem er einnig reiðubúið að starfa á hjúkrunarheimilum, við sérhæfðar dagdvalir eða við umönnunarstörf á sviði félagsþjónustu er bent á bakvarðasveit velferðarþjónustunnar hjá félagsmálaráðuneytinu.
Um skráningu í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar
Heilbrigðisráðuneytið hefur útbúið rafrænt skráningarform fyrir þá sem eru reiðubúnir að skrá sig í bakvarðasveitina. Fólki gefst kostur á að skrá sig í tímavinnu og jafnvel í fullt starf eða hlutastarf í allt að tvo mánuði ef hentar. Laun taka mið af kjarasamningi/stofnanasamningi viðkomandi stéttarfélags á viðkomandi stofnun. Skráningarformið er aðgengilegt á vef heilbrigðisráðuneytisins: Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar.