23.
nóvember 2020
Nýtt og veglegt tölublað Tímarits hjúkrunarfræðinga er farið í dreifingu til félagsmanna. Tímaritið er efnismikið og fjölbreytt enda af nógu að taka. Forsíðumyndina tók Helga Sif Friðjónsdóttir af listaverki eftir Vilmund Þorgrímsson myndhöggvara að Hvarfi í Djúpavogi.
Með Tímariti hjúkrunarfræðinga fylgir endurskinsmerki tileinkað árinu 2020 sem er sent öllum hjúkrunarfræðingum sem tákn um mikilvægi þeirra og að öryggi hjúkrunarfræðinga sé ávallt tryggt á sem bestan hátt.
Vefútgáfa tímaritsins er komin á vefsíðu félagsins og hægt að lesa hér.