Lokið hefur verið við flesta kjarasamninga við viðsemjendur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga en í öllum tilvikum hefur upphæð desemberuppbótar verið ákveðin. Fjárhæðir desemberuppbótar í desember 2020 eru því eftirfarandi:
Ríki | 94.000 kr. |
Reykjalundur |
94.000 kr. |
Reykjavíkurborg | 103.100 kr. |
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu | 94.000 kr. |
Samband íslenskra sveitafélaga | 118.750 kr. |
Starfsmaður sem er við störf í fyrstu viku nóvembermánaðar skal fá greidda persónuuppbót 1. desember ár hvert miðað við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október. Persónuuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum samkvæmt öðrum ákvæðum kjarasamningsins. Á uppbótina reiknast ekki orlofsfé.
Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall á framangreindu tímabili.
Á sama hátt skal einnig starfsmaður sem látið hefur af starfi en starfað hefur samfellt í a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) á árinu, fá greidda uppbót í desember, miðað við starfstíma og starfshlutfall. Sama gildir þótt starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur eða í allt að 6 mánuði vegna fæðingarorlofs. Tímavinnustarfsmenn fá greitt hlutfallslega miðað við unnar stundir.
Nánari upplýsingar um desemberuppbót