Samninganefndir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) skrifuðu undir kjarasamning í dag miðvikudaginn 2. desember. Samningurinn gildir frá 1. apríl 2019 til 31. mars 2023.
Kynningarfundur um efni nýs kjarasamnings verður haldinn föstudaginn 4. desember kl. 14:00-16:00 og mánudaginn 7. desember kl. 16:30-18:00 í fjarfundi á Teams. Allir hjúkrunarfræðingar sem eru á kjörskrá fá sent fundarboð á það netfang sem skráð er á Mínum síðum á hjukrun.is.
Kynningarefni um kjarasamninginn verður aðgengilegt á Mínum síðum á vef Fíh eftir kynningarfundinn 4.desember. Atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn hefst þriðjudaginn 8. desember kl. 10:00 og lýkur föstudaginn 11. nóvember kl. 12:00. Á kjörskrá verða þeir hjúkrunarfræðingar sem fengu greidd laun samkvæmt kjarasamningi SFV í september og október 2020.
Fíh hvetur hjúkrunarfræðinga hjá fyrirtækjum innan SFV til þess að sækja kynningarfundina, kynna sér vel efni nýs kjarasamnings og taka þátt í atkvæðagreiðslu.