3.
desember2020
Lokaskiladagur vegna heilsustyrks er 9. desember næstkomandi. Styrkir sem borist hafa fyrir þann tíma með tilskyldum gögnum verða greiddir út í síðasta lagi 20. desember 2020.
Veittur er styrkur í heild allt að 50.000 krónum á ári vegna heilsutengdra útgjalda. Greiðslur úr sjóðnum eru almennt skattskyldar og er staðgreiðslan dregin af fjárhæð fyrir útborgun. Styrkir vegna íþróttaiðkunar, heilsuræktar eða endurhæfingar eru þó ekki skattskyldir.
Sótt er um á mínum síðum og þarf umsókninni að fylgja kvittun vegna greiðslu (mynd/skjáskot eða PDF skjal).
Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Styrktarsjóðs.