Hjukrun.is-print-version

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu er hafin

RSSfréttir
8. desember2020

Samninganefndir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) skrifuðu undir kjarasamning  miðvikudaginn 2. desember síðastliðinn. Samningurinn gildir frá 1. apríl 2019 til 31. mars 2023.

Kynningarefni um kjarasamninginn er aðgengilegt á Mínum síðum á vef félagsins. Atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn hefst þriðjudaginn 8. desember kl. 10:00 og lýkur föstudaginn 11. nóvember kl. 12:00. Á kjörskrá verða þeir hjúkrunarfræðingar sem fengu greidd laun samkvæmt kjarasamningi SFV í september og október 2020.

Fíh hvetur hjúkrunarfræðinga hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu til þess að kynna sér vel efni nýs kjarasamnings og taka þátt í atkvæðagreiðslu.

 

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðslu og aðgengi að henni má finna á vefsvæði atkvæðagreiðslunnar.

 

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála