8.
desember2020
Kjörnefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga auglýsir eftir framboðum til formanns Fíh tímabilið 2021-2025.
Samkvæmt lögum félagsins er formaður kjörinn í allsherjaratkvæðagreiðslu. Einungis félagsmenn með fulla aðild eru kjörgengir í embætti formanns. Kjörtímabil formanns er fjögur ár og skal formaður vera í fullu starfi hjá félaginu. Framboðsfrestur er til 1. febrúar 2021.
Allar nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði um formannskjör.