Hjukrun.is-print-version

Með augum hjúkrunarfræðingsins

RSSfréttir
3. febrúar 2021

Auglýst er eftir ljósmyndum til að prýða forsíðu næsta tölublaðs Tímarits hjúkrunarfræðinga sem kemur út í mars.

Myndefni er frjálst en efnistök blaðs og árstíð geta haft áhrif á val forsíðumyndarinnar.
Ljósmyndir sem eru teknar á hæðina, frekar en þversum, henta betur sem forsíðumyndir.
Handhafi forsíðumyndar fær að launum gjafakort að andvirði 25.000 krónur.

Þátttakendur sendi myndir á netfangið ritstjori@hjukrun.is fyrir 15. febrúar með upplýsingum um hver tók myndina og stutta lýsingu á myndinni. Lokaskil á efni í blaðið er 12. febrúar.
Tímaritið áskilur sér rétt til að birta fleiri myndir í blaðinu með umfjöllun um samkeppnina.

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála