17.
febrúar 2021
Mánudaginn 22. febrúar mun skrifstofa Fíh opna aftur fyrir almennar heimsóknir. Starfsfólk mun eftir sem áður einnig sinna erindum gegnum síma og tölvupóst. Opnunartími skrifstofu er breyttur á nýju ári:
mánudaga - fimmtudaga 10:00-16:00
föstudaga kl. 10:00-12:00
Félagsmenn eru minntir á að gæta varúðar í heimsóknum og nota spritt og grímur. Salir Fíh verða enn lokaðir um óákveðinn tíma.