Auglýst er eftir tilnefningum fyrir Hvatningarstyrk Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 2021.
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, í samráði við stjórn Vísindasjóðs félagsins, hefur ákveðið að veita hvatningarstyrki til frumkvöðla í þróun og eflingu hjúkrunar á Íslandi. Styrkjunum er ætlað að styðja þessa frumkvöðla til að afla sér frekari þekkingar og/eða þjálfunar sem nýtist þeim til að þróa enn frekar nýsköpunarverkefni sem þeir eru í forsvari fyrir eða leiða. Um er að ræða fjóra 500.000.- króna styrki.
Allir félagar í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga geta tilnefnt þann frumkvöðul í þróun og eflingu hjúkrunar sem þeir telja að hljóta eigi styrk. Til að tilnefna þarf að smella hér og fylla út:
Stjórn Vísindasjóðs félagsins mun meta tilnefningar og ákvarða úthlutun.
Síðasti skiladagur er 1. maí 2021.