8.
apríl 2021
Miðvikudaginn 12. maí næstkomandi verður aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldinn á Grand Hótel, Reykjavík, kl. 17:00.
Vakin er athygli á að tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórn félagsins fyrir 14. apríl. Hið sama gildir um önnur mál sem félagsmenn óska eftir að tekin verði fyrir á aðalfundi. Tillögur og önnur mál sendist á netfangið stjorn@hjukrun.is.
Allir félagsmenn hafa rétt til setu á aðalfundi. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn með fulla aðild, fagaðild og lífeyrisaðild sem skrá sig til þátttöku á fundinn fyrir 5. maí. Aðrir fundarmenn hafa þar ekki atkvæðisrétt.
Boðið verður upp á streymi af aðalfundi fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.