Hjukrun.is-print-version

Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar kynnt á föstudag

RSSfréttir
29. apríl 2021

Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar, samstarfsvettvangs um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag sem Fíh tekur þátt í, verður kynnt næstkomandi föstudag, 30. apríl. Í skýrslunni er fjallað um kjarasamningalotuna sem hófst árið 2019 og stendur enn, þróun efnahagsmála og launa.

Kynningin verður í formi fjarfundar sem streymt verður í gegnum vef Kjaratölfræðinefndar. Fundurinn hefst kl. 10 og er áætlað að hann taki um 40 mínútur. Edda Rós Karlsdóttir, formaður nefndarinnar, kynnir skýrsluna og gerir grein fyrir helstu atriðum hennar og niðurstöðum. Þá mun Margrét K. Indriðadóttir frá Hagstofu Íslands fjalla um áhrif vinnutímastyttingar á laun. Meðal nýjunga í skýrslunni er samanburður á launaþróun karla og kvenna, og á launaþróun innflytjenda og annarra. Tekið verður við fyrirspurnum á ktn@ktn.is meðan á fundinum stendur. Fundarstjórn verður í höndum Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara.

Í nefndinni sitja fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, ríkis og sveitarfélaga, auk fulltrúa forsætisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Hagstofu Íslands. Vorskýrslan er önnur skýrsla nefndarinnar, en gert er ráð fyrir framvegis komi út tvær á ári – vor og haust.

Skýrslan og tölfræðigögn verða aðgengileg á vef Kjaratölfræðinefndar frá 30. apríl nk.

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála