Hjukrun.is-print-version

Desemberuppbót 2021

RSSfréttir
30. nóvember 2021

Fjárhæðir desemberuppbótar í desember 2021 eru eftirfarandi:

 

Ríki   96.000 kr. 
Reykjavíkurborg   106.100 kr.
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu       96.000 kr. 
Samband íslenskra sveitafélaga   121.700 kr.

 

Starfsmaður sem er við störf í fyrstu viku nóvembermánaðar skal fá greidda persónuuppbót 1. desember ár hvert miðað við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október. Persónuuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum samkvæmt öðrum ákvæðum kjarasamningsins. Á uppbótina reiknast ekki orlofsfé.

Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall á framangreindu tímabili.

Á sama hátt skal einnig starfsmaður sem látið hefur af starfi en starfað hefur samfellt í a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) á árinu, fá greidda uppbót í desember, miðað við starfstíma og starfshlutfall. Sama gildir þótt starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur eða í allt að 6 mánuði vegna fæðingarorlofs. Tímavinnustarfsmenn fá greitt hlutfallslega miðað við unnar stundir.

Nánari upplýsingar um desemberuppbót

 
Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála