Hjukrun.is-print-version

Skrifstofa Fíh lokuð fyrir almennum heimsóknum í byrjun nýs árs

RSSfréttir
29. desember2021

Vegna fjölgunar covid-smita og beiðni yfirvalda um að sem flestir vinni að heiman sem það geta, verður skrifstofa Fíh lokuð fyrir almennum heimsóknum frá og með mánudeginum 3. janúar. Starfsfólk mun eftir sem áður sinna erindum gegnum síma og tölvupóst. Þessi ákvörðun er tekin með velferð félagsmanna og starfsmanna í fyrirrúmi og til að tryggja órofinn rekstur félagsins.

Aðalnúmer Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er 540 6400 og tölvupóstur er hjukrun@hjukrun.is. Hér má finna tölvupóstföng starfsmanna, en hægt er að panta símtal frá viðkomandi starfsmanni með því að senda honum tölvupóst. Öllum fyrirspurnum er svarað eins fljótt og auðið er.


Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála