Hjukrun.is-print-version

Forgangsopnun orlofsvefs fyrir sumarið 2022

RSSfréttir
3. janúar 2022

Í ár verður sú breyting á úthlutunarreglum að þeir sem hafa leigt orlofshús s.l. tvö sumur geti ekki leigt í ár. Einnig er gerð sú breyting að forgangshópar hafa forgang í 24 klukkustundir í stað 48 klukkustunda eins og var í fyrra.

Forgangsopnun orlofsvefs fyrir sumarið 2022 hefst 22. mars, en opnun fyrir bókanir á orlofstímabilinu er háð punktainneign sjóðfélaga. Hver sjóðfélagi, sem ekki hefur leigt orlofshús síðastliðin tvö sumur, getur hámark bókað eina viku á orlofstímabilinu júní til ágústloka. Vefurinn opnar kl. 10 eftirfarandi daga:

 

22. mars       Sjóðfélagar sem eiga 112 punkta og fleiri geta bókað og greitt   
23.mars
 Sjóðfélagar sem eiga 82 punkta og fleiri geta bókað og greitt
24.mars
 Sjóðfélagar sem eiga fleiri en 15 punkta geta bókað og greitt


Athugið að best er að fara á orlofsvefinn með chrome vafra í tölvu.
Explorer vafri og iphone/ipad reynast ekki eins vel.

Meginástæður þess að félagsmenn komast ekki inn á vef við forgangsopnun:

  • Punktainneign er ekki næg sbr. hér að ofan
  • Ekki er greitt fyrir þeirra hönd í orlofssjóð og eru því ekki sjóðfélagar
  • Félagsmaður er fagaðili en hefur ekki greitt ársgjald og er því óvirkur
  • Félagsmaður leigði orlofsshús í júní,júlí eða ágúst árið 2020 eða 2021

Meginástæður vanda í pöntunarferli:

  • Ekki næst að klára pöntun vegna þess að nýtt kort hefur ekki verið virkjað
  • Öryggisnúmer berst ekki í SMS til að klára greiðslu: kort hefur ekki verið tengt síma. Hér þarf að tala við bankann
  • Ekki er nægileg inneign á kortinu

 

Orlofshúsnæðin er hægt að skoða á orlofsvef Fíh:

Orlofsvefur Fíh

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála