Hjukrun.is-print-version

Aðgengi að tölvunámskeiðum framlengt til 2023

RSSfréttir
24. janúar 2022
Síðastliðið ár hefur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga boðið félagsmönnum aðgengi að yfir 30 tölvunámskeiðum, þeim að kostnaðarlausu. Samningurinn við Tækninám hefur verið endurnýjaður, og námskeiðin þvi aðgengileg fram til ársbyrjunar 2023.

Meðal efnis sem er aðgengilegt á vefnum taekninam.is eru námskeið í Outlook, Word, Excel, Teams o.fl. og getur nemandi spilað efnið á sínum hraða og á þeim tíma sem honum hentar. Allt námsefnið er á íslensku.

Nánari upplýsingar um skráningu er að finna á Mínum síðum undir flipanum Rafræn fræðsla.
Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála