Kjörnefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga auglýsir eftir framboðum í stjórn félagsins og ritnefnd Tímarits hjúkrunarfræðinga fyrir kjörtímabilið 2022-2024. Einnig er auglýst eftir skoðunarmönnum fyrir kjörtímabilið 2022-2023:
- Stjórn Fíh: 3 stjórnarmenn og 1 varamaður
- Ritnefnd Tímarits hjúkrunarfræðinga : 3 fulltrúar (2 í almenna hluta ritnefndar og 1 í ritrýnda hlutann). Sú krafa er gerð að fulltrúi í ritrýnda hluta hafi doktorsmenntun eða sé langt kominn með námið.
- Skoðunarmenn: 2 skoðunarmenn
Samkvæmt lögum félagsins er kosið til tveggja ára í senn, nema í tilfelli skoðunarmanna, þar er kosið til eins árs í senn. Hámarksseta í nefndum og stjórn er fjögur tímabil samfellt.
Félagsmenn með fulla aðild eru kjörgengir í sjóði, nefndir og ráð á vegum félagsins ef lög þess kveða ekki á um aðra skipan.
Félagsmenn með fagaðild og lífeyrisaðild eru kjörgengir í nefndir og ráð á vegum félagsins ef lög þess kveða ekki á um aðra skipan.
Kosning fer fram á aðalfundi félagsins 12. maí 2022. Framboðsfrestur er til 8. apríl 2022.
Framboð tilkynnist til kjörnefndar í netfangið kjornefnd@hjukrun.is