Senn kemur að úthlutun úr A-hluta Vísindasjóðs, en styrkir úr A-hluta eru að jafnaði greiddir sjóðsfélögum í febrúarlok ár hvert.
Ekki þarf að sækja sérstaklega um úthlutun úr A-hluta, heldur er upphæð sem nemur 45% af því iðgjaldi sem vinnuveitandi hefur greitt inn í sjóðinn fyrir hönd sjóðfélaga lögð inn á bankareikning viðkomandi.* Sjóðfélagi telst sá aðili vera sem var starfandi samkvæmt kjarasamningi félagsins fyrir 31. desember árið fyrir úthlutun.
Forsendur þess að hægt sé að greiða úr sjóðnum eru að persónuupplýsingar sjóðfélaga séu réttar. Þessar upplýsingar er hægt að uppfæra á Mínum síðum, og yfirlit yfir fyrri greiðslur úr A-hluta Vísindasjóðs má einnig finna þar.
Nánari upplýsingar um A-hluta Vísindasjóðs.
*Athugið að þeir hjúkrunarfræðingar sem starfa samkvæmt kjarasamningi við Samband íslenskra sveitarfélaga fá úthlutað í samræmi við fyrri reglur.